Hátíð um áramót

Þann 30. desember stígur Karlakórinn Heimir á svið í Menningarhúsinu Miðgarði með áramótatónleika. Með þeim verður hljómsveit úr Tónlistarskóla Skagafjarðar, Varmahlíð. Að auki syngja Hafsteinn Máni Björnsson og Jón Hjálmar Ingimarsson nokkur lög með kórnum.

Forsala aðgöngumiða er í Blóma- og gjafabúðinni á Sauðárkróki og í KS Varmahlíð. 

Tónleikarnir hefjast kl. 20.30. Húsið opnar 19.30. 


Athugasemdir

Svæði

Menningarhúsið Miðgarður   |   guttikristin@simnet.is   |   Sími: 868 6851