30.10.2015 - Athugasemdir ( )
Á föstudagskvöldið verður hagyrðingakvöld í Menningarhúsinu Miðgarði. "Þetta verður kvöld kveðskapar, söngs og gamanmála" segir í fréttatilkynningu um viðburðinn og allur ágóði af miðasölu rennur óskiptur til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands, Skagafjarðardeild.
Forseti Alþingis, Einar K. Guðfinnsson stjórnar þingi hagyrðinga, sem eru:
Sr. Hjálmar Jónsson,
Halldór Blöndal,
Sigurður Hansen,
Gunnar Rögnvaldsson,
Eyþór Árnason.
Tónlistaratriði:
Ólöf Ólafsdóttir syngur við undirleik Jóns Gíslasonar
Gunnar Rögnvaldsson og Jón Hallur Ingólfsson taka lagið.
Framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Íslands Ragnheiður Haraldsdóttir flytur ávarp.
Sjáumst!
Athugasemdir