Skákþing Norðlendinga 2026

Skákþing Norðlendinga 2026 verður haldið í Menningarhúsinu Miðgarði, Varmahlíð Skagafirði, efri hæð, helgina 24.-26. apríl.


Klukkan. 20.00 föstudagskvöldið 24. apríl verður Hraðskákþing Norðlendinga. Ekkert þátttökugjald er í það og verðlaun fyrir fyrsta sæti 15.000 kr. Gert er ráð fyrir að tefldar verði 11 umferðir, (3+2) eftir svissnesku kerfi, en getur ráðist af fjölda keppenda.


Skákþing Norðlendinga hefst svo kl. 11.00 laugardaginn 25. apríl og verða tefldar 9 umferðir atskák (15+10). 5 skákir á laugardeginum og 4 á sunnudag. Þátttökugjald er 4000 (2000 fyrir 16 ára og yngri) Verðlaun verða 55.000 fyrir fyrsta sæti, 40.000 annað, 25.000 þriðja og 15.000 efsti keppandi undir 1800 stigum. Aukaverðlaun fyrir Norðurlandsmeistara, 20.000, ef hann verður ekki meðal verðlaunahafa.
Verðlaunafé verður skipt eftir Hort-kerfi verði keppendur jafnir að vinningum. Lokaröð keppenda ræðst af oddastigum (tiebreaks). 1. Fleiri tefldar skákir 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz 4. Innbyrðis úrslit 5. Sonneborn-Berger 6. Oftar svart

Þátttökutilkynningar hjá jhaym@simnet.is í síma 8653827 eða í gula kassanum á Skák.is


Athugasemdir

Svæði

Menningarhúsið Miðgarður   |   tenorslf@gmail.com   |   Sími: 894 3113